Hefja morðrannsókn á dauða Glushkov

Lögreglumaður stendur fyrir utan hús Nikolai Glushkov í suðurvesturhluta London.
Lögreglumaður stendur fyrir utan hús Nikolai Glushkov í suðurvesturhluta London. AFP

Hafin er morðrannsókn á vegum Rússa á dularfullum dauðdaga Nikolai Glushkov sem fannst látinn á heimili sínu í London fyrr í þessum mánuði.

Rannsóknarnefnd Rússa, sem fer með rannsókn á stórum glæpamálum, sagðist ætla að rannsaka dauða Glushkov.

Hann var fyrrverandi yfirmaður hjá rússneska flughernum sem hlaut pólitískt hæli í Bretlandi eftir að hafa verið handtekinn í Rússlandi fyrir peningaþvætti og fjársvik

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert