Flugferðir falla niður vegna veðurs

Það snjóar í London.
Það snjóar í London. Ljósmynd/Twitter

Búið er að aflýsa meira en 100 flugferðum til og frá Heathrow-flugvelli í London í morgun vegna snjókomu í höfuðborg Englands. Veðurspáin er slæm og talið er að frekari tafir geti orðið á flugferðum.

Flugfélagið British Airways þurfti meðal annars að aflýsa fjölda flugferða innan Bretlandseyja; til Glasgow og Manchester.

„Gert er ráð fyrir minni háttar töfum á Heathrow vegna veðurs,“ sagði talsmaður flugvallarins en hiti er við frostmark í London og það snjóar. 

„Við fylgjumst vel með framvindu mála en það er gert ráð fyrri því að það snjói áfram um helgina,“ bætti talsmaðurinn við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert