Vladimír Pútín mun leiða rússnesku þjóðina í sex ár í viðbót samkvæmt útgönguspám um úrslit forsetakosninganna sem fara fram í landinu í dag. BBC greinir frá.
Útgönguspár á vegum rússneskra stjórnvalda gefa til kynna að Pútín muni hljóta 73,9% atkvæða og tryggja þannig sigur sinn á auðveldan hátt. 20% atkvæða hafa verið talin og er Pútín með um 72% talinna atkvæða.
Helsti andstæðingur hans, Alexei Navalny, fékk ekki að bjóða sig fram vegna skilorðsbundins dóms. Hreyfing á hans vegum hefur hins vegar sent 33.000 sjálfboðaliða á kjörstaði víðsvegar um Rússland til að fylgjast með framkvæmd kosninganna.
Helsti keppinautur hans sem fékk að bjóða sig fram, Pavel Grudini, frambjóðandi Kommúnistaflokksins, er með 11,2% kosningu samkvæmt útgönguspám.
Ásakanir um kosningasvindl eru háværar í landinu og eru dæmi um að fólk hafi kosið oftar en einu sinni og upptökum sem sýna fulltrúa kjörstjórnar troða útfylltum kjörseðlum í kjörkassana áður en fyrstu kjósendur komu á kjörstað hefur verið dreift á netið.
Frétt mbl.is: Ásakanir um kosningasvindl farnar að berast
Kosningasigur Pútíns, ef sannur reynist, er þónokkuð meiri en fyrir sex árum þegar hann hlaut 64% kosningu.