Segir sökudólginn vera sjúkan

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur heitið því að yfirvöld muni finna sökudólginn eða sökudólgana á bak við sprengingar sem hafa orðið í pökkum í ríkinu Texas að undanförnu.

„Þetta er hræðilegt mál,“ sagði Trump, „Þetta er augljóslega mjög, mjög sjúkur einstaklingur eða kannski einstaklingar. Þetta er sjúkt fólk og við munum komast til botns í þessu.“

Einn særðist í síðustu sprengingunni sem varð í nágrenni San Antonio í nótt.

FBI að störfum í San Antonio.
FBI að störfum í San Antonio. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert