Birti myndband af ungbarni að reykja

Svo virðist sem barnið sé látið reykja á myndbandinu.
Svo virðist sem barnið sé látið reykja á myndbandinu. Skjáskot/YouTube

Bandarísk kona var handtekin eftir að hafa birt myndband á netinu af ungbarni að því er virtist að reykja.

Í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar um málið segir að horft hafi verið á myndbandið yfir milljón sinnum áður en lögreglu var gert viðvart. Í kjölfarið var konan, sem er tvítug, handtekin.

Á myndbandinu má sjá hönd fullorðinnar manneskju rétta logandi „rettu“ upp að vörum barnsins. Svo má sjá barnið draga reyk að sér og blása honum svo frá sér.

Konan hefur verið ákærð fyrir að hafa marijúana á sér og einnig fyrir illa meðferð á barni. Barninu hefur verið komið fyrir í tímabundnu fóstri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert