Handtökuskipun á hendur Lee-Myung-bak

Lee Myung-bak, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu.
Lee Myung-bak, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu. AFp

Suður-kóreskur dómstóll hefur gefið út handtökuskipun á hendur Lee-Myung-bak, fyrrverandi forseta landsins, vegna ásakana um spillingu.

Nokkrir dagar eru liðnir síðan hann var yfirheyrður í langan tíma af saksóknurum. 

Forsetinn fyrrverandi, sem er 76 ára, sat í embætti á árunum 2008 til 2013.

Hann er einn af þó nokkrum fyrrverandi leiðtogum sem hefur verið rannsakaður fyrir glæpsamlegt athæfi. Hann sakaður um að hafa þegið milljónir dollara í mútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert