Byssusmiðurinn Remington gjaldþrota

Riffill frá Remington á byssusýningu í Nevada.
Riffill frá Remington á byssusýningu í Nevada. AFP

Bandaríski byssusmiðurinn Remington óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í gær. Fyrirtækið, sem hefur starfað í yfir 200 ár, hefur safnað upp gífurlegum skuldum.

Remington tilkynnti í febrúar að það ætlaði að óska eftir gjaldþrotaskiptum, aðeins tveimur dögum eftir skotárásina í Parkland-menntaskólanum í Flórída þar sem sautján manns voru drepnir.

Þá var einnig greint frá því að með gjaldþrotabeiðninni næðist samkomulag um að draga úr 700 milljóna dollara skuldum fyrirtækisins. Jafnframt verður nýtt fjármagn að upphæð 145 milljónum króna sett inn í dótturfyrirtæki Remington.

Að undanförnu hafa raddir orðið háværari um að herða reglur um byssueign í Bandaríkjunum, sérstaklega eftir árásina í Flórída. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert