Meðal þeirra 64 sem létust í eldsvoðanum í verslunar- og afþreyingarmiðstöðunni í Kemerovo í Rússlandi á sunnudag var 41 barn. Rússneska fréttastofan RIA Novosti greindi frá þessu í morgun.
Áður hafði Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagt að eldsvoðinn hafi orðið vegna „glæpsamlegrar vanrækslu.“
Yfirmaður rannsóknarnefndar hefur talað um alvarleg brot á brunavörnum og er málið rannsakað sem glæpur. Fimm manns hafa verið handteknir vegna málsins þeirra á meðal öryggisvörður sem grunaður er um að hafa lokað neyðarútgöngum.
Enn er leitað að ellefu manneskjum í tengslum við brunann en foreldrar ungmanna hafa birt myndir af börnum sínum í grennd við rústir verslunarmiðstöðvarinnar í von um að þau finnist á lífi.