Segir sönnunargögn liggja fyrir

AFP

Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, segir að sönnunargögn liggi fyrir sem sýni að efnavopnum hafi verið beitt í Sýrlandi og að sýrlensk yfirvöld, undir stjórn Bashar al-Assad, hafi beitt þeim. Þetta kom fram í viðtali við Macron í franska sjónvarpinu í morgun. Hann segir að brugðist verði við þessu og það verði gert á þann hátt sem talið sé áhrifaríkast.

Á sama tíma hefur forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, dregið úr hótunum sínum um eldflaugaárás og er mun loðnari í svörum í dag en í gær. Hann segir að annaðhvort verði árásin gerð fljótlega eða bara alls ekki fljótlega.

„Ég sagði aldrei hvenær árásin á Sýrland yrði gerð. Það gæti verið fljótlega eða alls ekki fljótlega.

Undir hans stjórn hafi Bandaríkin unnið frábært starf við að hreinsa svæðið af liðsmönnum Ríkis íslams. „Hvar er þakklætið?“ spyr forsetinn á Twitter í morgun.

Einn af yfirmönnum uppreisnarhópsins Jaish al-Islam, sem áður fór með stjórn í Douma, segir að ekki hafi annað verið hægt en að yfirgefa bæinn eftir efnavopnaárásina. Árásin hafi verið ástæðan fyrir því að uppreisnarmennirnir ákváðu að hopa en í morgun blakti sýrlenski fáninn við hún í bænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert