Sjö létust í fangaóeirðum

Frá fangelsi í Bandaríkjunum.
Frá fangelsi í Bandaríkjunum. AFP

Sjö fangar eru látnir og sautján særðir eftir uppþot í öryggisfangelsi í Suður-Karólínu í dag. þetta staðfestir fangelsismálastofnun ríkisins. 

Stofnunin segir að óeirðir hafi brotist út í gærkvöldi í Lee-fangelsinu í Bishopville. Hún hafi ekki verið brotin á bak aftur fyrr en um klukkan þrjú í nótt að staðartíma. 

„Atvikið í Lee-fangelsinu endaði með því að sautján fangar þurftu á læknisaðstoð utan fangelsisins að halda og sjö létust,“ segir í færslu fangelsismálastofnunarinnar á Twitter. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert