Búkur af konu fannst á föstudaginn á botni stöðuvatnsins Neusiedler See í Austurríki við landamærin að Ungverjalandi. Lögreglan hefur síðan fundið fleiri líkamsparta samkvæmt frétt AFP í kjölfar leitar á svæðinu.
Fram kemur í fréttinni að meðal annars hafi fundist tveir framhandleggir og tveir lærleggir í gærkvöldi. Kafarar fundu líkamspartana skammt frá þeim stað sem búkurinn fannst í nágrenni bæjarins Rust.
Talið er að líkamspartarnir hafi tilheyrt sömu manneskjunni að sögn saksóknarans Roland Koch en eftir er að framkvæma lífsýnarannsókn á þeim. Gert er ráð fyrir að það verði gert í dag.
Ekki liggur fyrir hver konan var eða hvernig hún lét lífið.