Nakinn maður skaut þrjá til bana

Atvikið átti sér stað í úthverfinu Antioch.
Atvikið átti sér stað í úthverfinu Antioch. Kort/Google

Nakinn maður vopnaður riffli skaut þrjá til bana og særði a.m.k. fjóra á veitingastað skammt frá Nashville í Bandaríkjunum. 

Lögreglan í Nashville segir að atvikið hafi átt sér stað klukkan 3:25 um nótt á veitingahúsinu Waffle House í Antioch, sem er úthverfi suðaustur af Nashville.

Gestur á staðnum náði að taka byssuna af árásarmanninum. Honum tókst hins vegar að flýja á tveimur jafnfljótum. Lögreglan segir að maðurinn sé hvítur með stutt hár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert