Í haldi grunaður um morð í Stokkhólmi

Sænska lögreglan að störfum en myndin er ekki tekin á …
Sænska lögreglan að störfum en myndin er ekki tekin á vettvangi. AFP

Þrítugur karlmaður var handtekinn í nótt grunaður um að bera ábyrgð á falli 18 ára gamallar stúlku af svölum í Stokkhólmi.

Samkvæmt frétt Dagens Nyheter voru lögregla og sjúkrabíll send á staðinn eftir að tilkynning barst á þriðja tímanum um að kona hefði fallið af svölum á þriðju hæð fjölbýlishúss í Norsborg-hverfinu.

Ekki er vitað hver tengsl mannsins eru við ungu konuna en lögregla vinnur að rannsókn málsins. Aðstæður á vettvangi voru aftur á móti þannig að lögregla telur að glæpur hafi verið framinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert