Innrás lögreglu í svítu Paddocks

Lögreglan í Las Vegas hefur birt myndskeið af því þegar hún réðst inn í hótelsvítu Stephens Paddock á Mandalay Bay-hótelinu 1. október í fyrra.

Paddock hafði skotið á gesti tónlistarhátíðar í Las Vegas og myrt 58 manns, auk þess sem yfir 500 til viðbótar særðust, áður hann hann framdi sjálfsvíg.

Hann var látinn þegar lögreglan kom á vettvang en meðfylgjandi myndskeið er tekið af vef BBC. 

Brotnar rúður á 32. hæð Mandalay Bay-hótelsins þar sem Paddock …
Brotnar rúður á 32. hæð Mandalay Bay-hótelsins þar sem Paddock hóf skothríðina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert