Rússnesk herþota brotlenti í Sýrlandi

Su-30SM herflugvél.
Su-30SM herflugvél. Wikipedia/ Sergey Krivchikov

Rússnesk orrustuþota brotlenti skömmu eftir flugtak í Sýrlandi í dag og létust báðir flugmennirnir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá rússneska varnarmálaráðuneytinu.

Flugvélin var enn að hækka flugið eftir flugtak á Hmeimim  herflugvellinum þegar hún brotlenti í Miðjarðarhafi. Um var að ræða Su-30SM orrustuvél.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert