Engin bókmenntaverðlaun í ár

Bókmenntaverðlaun Nóbels verða ekki afhent í ár. Þetta kemur fram í færslu sænsku akademíunnar (SA) í morgun. Þetta er í fyrsta sinn frá því að seinni heimstyrjöldinni lauk að verðlaunin eru ekki afhent. 

Bein lýsing af blaðamannafundi á vef sænska ríkissjónvarpsins

Anders Olsson, starfandi ritari SA, greindi frá þessu á fundi með blaðamönnum í morgun. Hann segir að ákvörðunin hafi verið tekin eftir löng og stíf fundarhöld en traust á nefndinni og störfum hennar sé það lítið í dag að ekki hafi verið hægt að bregðast öðruvísi við. Stefnt sé að því að afhenda þau á næsta ári og vonandi verði um tvær verðlaunaafhendingar að ræða þá, segir Olsson. 

Bókmenntaverðlaun Nóbels voru fyrst afhent árið 1901 en sjö sinnum hefur ekki verið hægt að veita verðlaunin á tilsettum tíma, en í þau skipti voru þau afhent síðar. Olsson segir ástandið afar sérstak í ár en hluti nefndarmanna hefur sagt af sér vegna ásakana á hendur Jean-Clau­de Arnault, sem verið hef­ur mjög áhrifa­mik­ill í sænsku bók­mennta­lífi um ára­bil, um kyn­ferðis­lega áreitni.

Allt hófst þetta með #MeToo herferðinni í nóvember en þá birti sænska dagblaðið Dagens Nyheter frásagnir átján kvenna sem sökuðu Arnault um að hafa nauðgað sér, beitt sig kynferðislegu ofbeldi eða áreitt sig kynferðislega. Arnault hefur alla tíð neitað ásökunum. 

Arnault er gift­ur skáld­kon­unni Kat­ar­inu Frosten­son (val­in inn í aka­demí­una 1992). Þau hjón­in hafa um langt ára­bil rekið bók­mennta­klúbb­inn For­um, sem þau eiga, og notið góðs af fjár­fram­lög­um frá aka­demí­unni.

Tveim­ur dög­um eft­ir að lög­regl­an hóf rann­sókn á ásök­un­um kvenn­anna í des­em­ber sleit Sænska aka­demí­an öll tengsl sín við Arnault. Sara Danius (val­in 2013), sem fyrst kvenna tók við stöðunni sem rit­ari Sænsku aka­demí­unn­ar 2015, for­dæmdi hátta­lag Arnault og ákvað aka­demí­an í fram­hald­inu að ráða lög­fræðistof­una Hamm­arskiöld & Co til að rann­saka tengsl Arnault við alla meðlimi aka­demí­unn­ar.

Ákvörðun sænsku akademíunnar mun ekki hafa nein áhrif á afhendingu annarra Nóbelsverðlauna í ár, segir stjórnarformaður Nóbelsnefndarinnar, Carl-Henrik Heldin. 

Nú liggur fyrir að næsta verk sænsku akademíunnar verður að velja nýja nefndarmenn inn í hana en hún er skipuð af konungi Svía og er um ævilanga ráðningu að ræða. 

Frá því í byrjun apríl hafa sex nefndarmenn sagt af sér. Fyrst Klas Östergren, Kjell Espmark og Peter Englund. Síðar fylgdi Katarina Frostensson á eftir og Sara Danius sem var ritari nefndarinnar. Á laugardag sagði Sara Striðsberg sig frá störfum fyrir SA. Áður höfðu þær Kerstin Ekman og Lotta Lotass yfirgefið SA og eru því aðeins 10 nefndarmenn eftir.

Sam­kvæmt regl­um SA þarf 12 at­kvæði sitj­andi meðlima til að taka all­ar meiri­hátt­ar ákv­arðanir, svo sem að kjósa inn nýja meðlimi og velja Nó­bels­verðlauna­hafa í bók­mennt­um.

Sænska akademían er hér til húsa.
Sænska akademían er hér til húsa. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert