Fengu að sækja gæludýrin

Hraun þeytist upp í loftið rétt fyrir framan mann sem …
Hraun þeytist upp í loftið rétt fyrir framan mann sem tekur mynd af gosinu. AFP

Gosið í Kilauea-eldfjallinu á Hawaii hefur þegar eyðilagt 26 hús og hundruðum til viðbótar stafar ógn af því. Nýjar gossprungur opnuðust í nótt. 

Nú þegar hefur um 2.000 manns verið gert að yfirgefa heimili sín. Sumum íbúum var leyft að snúa aftur til húsa sinna í gær til að bjarga þaðan gæludýrum en þeim var ekki óhætt að dvelja þar lengi.

Hraun þeytist um 70 metra upp í loftið úr nýju gossprungunum. Kröftugur jarðskjálfti sem mældist 6,9 stig varð á föstudag. 

„Þegar ég yfirgaf heimili mitt á fimmtudag varð ég að kveðja því ég hef búið hér lengi og veit hvað hraun getur gert,“ sagði Ikaika Marzo í samtali við BBC. „Við þurfum öll að vera raunsæ.“

Brenton Awa sagðist vera miður sín að vita af gæludýrum í húsunum sem þurfti að rýma. „Hjarta mitt brestur við að vita af gæludýrum enn í búrum, inni í girðingum eða án matar.

Kilauea er eitt virkasta eldfjall heims og hefur gosið reglulega í 35 ár. 

Eldar kvikna í gróðri í Leilani-hverfinu á Hawaii.
Eldar kvikna í gróðri í Leilani-hverfinu á Hawaii. AFP
Hraun flæðir frá eldfjallinu rétt við íbúabyggð.
Hraun flæðir frá eldfjallinu rétt við íbúabyggð. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert