Armenska þingið hefur kjörið stjórnarandstöðuleiðtogann Nikol Pashinyan sem forsætisráðherra landsins.
Alls greiddu 59 þingmenn atkvæði með kjöri Pashinyan en 42 greiddu atvæði á móti.
Þetta var önnur atkvæðagreiðsla þingsins um nýjan forsætisráðherra en þingið felldi kjör Pashinyan í síðustu viku.
Tugir þúsunda Armena hafa mótmælt stöðu mála í höfuðborg landsins að undanförnu.