110 fórust í Havana

Frá slysstaðnum í Havana.
Frá slysstaðnum í Havana. AFP

110 manns fórust í flugslysinu í Havana á Kúbu í gær. Adel Yzquierdo, samgönguráðherra Kúbu, greindi frá þessu.

Á meðal hinna látnu eru 99 Kúbverjar, sex Mexíkóar úr áhöfninni, tveir farþegar frá Vestur-Sahara, mexíkóskur ferðamaður og argentískt par.

Áður hafði verið sagt frá því að 107 hefðu farist.

Þrír farþegar fundust á lífi í vélinni og er ástand þeirra alvarlegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert