Weinstein ekki velkominn aftur

Argento uppi á svið á lokaathöfn Cannes-hátíðarinnar.
Argento uppi á svið á lokaathöfn Cannes-hátíðarinnar. AFP

Ítalska leikkonan Asia Argento, sem hefur sakað kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein um að hafa nauðgað sér á kvikmyndahátíðinni í Cannes, segir að hann verði aldrei velkominn þangað aftur.

„Hans veiðilendur voru á þessari hátíð,“ sagði Argento á Cannes-hátíðinni, þar sem hún afhenti verðlaun í flokknum besta leikkonan.

Hún segist hafa verið 21 árs þegar Weinstein réðst á hana á hótelherbergi hans árið 1997.

„Hann sat á meðal ykkar. En hlutirnir hafa breyst. Við ætlum ekki að leyfa þér að komast upp með þetta,“ bætti hún við og átti þar við Weinstein.

Harvey Weinstein.
Harvey Weinstein. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert