Bremsulaus bíll ók á hús og ellefu létust

Íbúar standa í grennd húsa sinna í Brebes en bremsulaus …
Íbúar standa í grennd húsa sinna í Brebes en bremsulaus vörubíll ók á sjö hús. AFP

Að minnsta kosti ellefu létust er flutningabíll sem var að flytja sykur ók á nokkur mótorhjól og hús í Indónesíu í dag. 

Bíllinn var á leið niður hæð í Brebes á eyjunni Jövu á leið til höfuðborgarinnar Jakarta er bremsur hans biluðu. Bílstjórinn reyndi að hægja á sér með því að beygja til hliðar en lenti þá á bíl, þrettán mótorhjólum og sjö húsum. 

„Nú eru ellefu látnir og sjö slasaðir,“ segir talsmaður lögreglunnar. Ekki er vitað hver örlög bílstjórans urðu á þessari stundu.

Umferðarslys eru algeng í Indónesíu þar sem bílum, rútum og lestum er oft illa við haldið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert