Vígamenn hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams felldu 26 hermenn stjórnarhers Sýrlands úr launsátri í Badiya-eyðimörkinni í landinu.
Í frétt eftirlitssamtakanna Syrian Observatory for Human Rights segir að árásin hafi verið gerð í dögun á varðstöð hersins í Badiya. Að minnsta kosti 26 hafi fallið.
Badiya er víðfeðmt eyðimerkursvæði í miðhluta Sýrlands, austur af landamærunum að Írak þar sem vígamenn Ríkis íslams hafa enn yfirráð á litlu svæði.