Félög í NFL-deildinni í Bandaríkjunum mega búast við sektum ef leikmenn þeirra krjúpa á meðan þjóðsöngur Bandaríkjanna er fluttur fyrir leiki á næstu leiktíð.
BBC greinir frá því að eigendur NFL-liða hafi samþykkt nýja reglugerð þess efnis að félög verði sektuð af deildinni ef leikmenn eða starfsmenn þeirra gerast sekir um að vanvirða bandaríska fánann eða þjóðsönginn, svo sem með því að krjúpa á meðan þjóðsöngnum stendur. Upphæð sektanna er ekki tekin fram í reglugerðinni.
Forsaga málsins er sú að í ágúst 2016 tók Colin Kaepernick, leikstjórnandi San Francisco 49ers, þá ákvörðun að standa ekki heldur krjúpa á meðan þjóðsöngur Bandaríkjanna var sunginn fyrir leik. „Ég ætla ekki að standa upp til að sýna stolt gagnvart fána lands sem kúgar svarta og litað fólk. Fyrir mér er þetta stærra en fótboltinn og það væri sjálfselskt af mér að líta undan. Það liggja lík í götunni og fólk er að fara í launað leyfi og komast upp með morð,“ sagði Kaepernick.
Í kjölfarið fór af stað mótmælaalda meðal leikmanna bandarísku NFL-deildarinnar og fleiri íþróttamanna, sem stigmagnaðist á örskotsstundu. Donald Trump Bandaríkjaforseti blandaði sér meðal annars í umræðuna og hvatti hann meðal annars til þess að þeir leikmenn sem ekki stæðu undir þjóðsöngnum yrðu umsvifalaust látnir fjúka.
Samkvæmt nýju reglugerðinni gefst leikmönnum hins vegar kostur á að hinkra inni í búningsklefa á meðan þjóðsöngurinn er leikinn. Leikmannasamtök deildarinnar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að forsvarsmenn deildarinnar hafi ekki sett sig í samband við samtökin né talsmenn leikmanna áður en reglugerðin var samþykkt.
Leikmannasamtökin efast um þessa nýju „reglugerð“ og munu þau mótmæla henni ef í ljós kemur að hún stenst ekki samkomulag sem var gert á milli leikmanna og deildarinnar á síðustu leiktíð.