Óttast um virkjun á Hawaii

Hraunstraumurinn frá Ki­lau­ea-eld­fjall­inu á Hawaii nálgast nú orkuver sem yfirvöld hafa reynt að verja fyrir eldgosinu. Ekki er talið að Puna-jarðvarmavirkjunin sé enn í hættu en óttast er að hraunið muni jafnvel ná til virkjunarinnar.

Yfirvöld fylgjast grannt með enda mikið í húfi. Í varúðarskyni hafa eldfim efni verið flutt úr virkjuninni og kalt vatn notað á borholurnar. 

Eld­fjallið Ki­lau­ea er eitt það virk­asta á jörðinni og eitt fimm eld­fjalla á þess­ari stærstu eyju Hawaii-eyja­klas­ans. Að minnsta kosti 2.000 manns hafa yf­ir­gefið heim­ili sín vegna eld­goss­ins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert