12 létust í árás Bandaríkjahers

Úthverfi Damaskus, Hajar al-Aswad.
Úthverfi Damaskus, Hajar al-Aswad. AFP

Að minnsta kosti tólf liðsmenn í skæruliðasamtökum sem berjast gegn stjórnvöldum í Sýrlandi létust í árás sem gerð var á búðir þeirra í nótt, samkvæmt upplýsingum frá Syrian Observatory for Human Rights.

Samtökin segja að árásin hafi verið gerð af hersveitum undir forystu Bandaríkjamanna á svæði suður af Albu Kamal en liðsmenn vígasveita Ríkis íslams hafa ítrekað herjað á íbúa þar. Að minnsta kosti þrír herbílar voru eyðilagðir í loftárásinni, segir yfirmaður mannúðarsamtakanna, Rami Abdel Rahman.

Hann segir að skæruliðarnir sem létust hafi verið útlendingar, ekki Sýrlendingar, en hann vissi ekki frekari deili á þeim. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert