35 féllu í árás Ríkis íslams

AFP

Að minnsta kosti 26 sýrlenskir hermenn og níu Rússar létust í árás vígasveita Ríkis íslams í vikunni.

Mannúðarsamtökin Syrian Observatory for Human Rights greina frá þessu í dag en árásin var gerð á bækistöðvar Sýrlandshers skammt frá bænum Mayadeen í Deir Ezzor-héraði á miðvikudag.

Að sögn yfirmannns samtakanna, Rami Abdel Rahman, létust 35 í árásinni þar á meðal níu Rússar hið minnsta. Hann segir að einhverjir Rússanna hafi verið í sýrlenska hernum en ekki allir þeirra.

Rússneska varnarmálaráðuneytið greindi frá því fyrr í dag að fjórir rússneskir hermenn hefði fallið í átökum við vígamenn í Deir Ezzor. Hvorki kemur fram nákvæm staðsetning né tímasetning í tilkynningu yfirvalda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert