Trump og Kardashian funduðu

Kardashian á leið í Hvíta húsið í dag.
Kardashian á leið í Hvíta húsið í dag. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti fundaði með raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian í Hvíta húsinu í dag um fangelsismál. Ræddu þau um mögulega náðun 63 ára ömmu, Alice Marie Johnson, sem afplánar lífstíðardóm í fangelsi í Alabama.

Trump sagði á Twitter að fundurinn hafi verið góður. 

Kar­dashi­an er sögð hafa unnið mánuðum sam­an með Ivönku Trump, dótt­ur for­set­ans, og eig­in­manni henn­ar Jared Kus­hner að því að frelsa John­son.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert