Kim sendi Trump „risastórt“ bréf

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Kim Yong Choi, sendifulltrúi Norður-Kóreu, með …
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Kim Yong Choi, sendifulltrúi Norður-Kóreu, með bréfið frá Kim Jong-un. Skjáskot/Twitter

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að fyrirhugður leiðtogafundur hans og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, væri aftur komin á dagskrá. Trump tilkynnti þetta eftir að Kim Yong Choi, háttsettur sendifulltrúi norðurkóresku stjórnarinnar flutti forsetanum bréf frá Kim.

Hvíta húsið hefur birt myndir af Trump með bréfið og hefur stærð þess vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum að sögn CNN fréttastofunnar.

Bentu sumir Twitter notendur á að maður virðist smáhentur ef maður heldur á stóru umslagi, en Trump hefur áður varið  stærð handa sinna. Aðrir hafa velt því fyrir sér hvort að forsteinn muni svara fyrir sig með jafn stóru bréfi?

Innihald bréfsins frá Kim er hins vegar enn á huldu. Trump sagði þó við fjölmiðla í gær að bréfið sem hann fékk af­hent væri „mjög áhuga­vert og að á ein­hverj­um tíma­punkti kynni að vera viðeig­andi“ að gera það op­in­bert að því er BBC grein­ir frá. Hann væri þó ekki bú­inn að lesa það sjálf­ur ennþá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert