Fyrrverandi körfuboltastjarnan Dennis Rodman er komin til Singapúr þar sem leiðtogafundur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, fer fram í nótt. Rodman og Kim eiga í furðulegu vinasambandi, en norðurkóreski leiðtoginn hefur mikinn áhuga á körfubolta. Rodman hefur fimm sinnum heimsótt Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, frá því Kim tók þar við völdum. AFP-fréttastofan greinir frá.
Rodman ræddi við blaðamenn á Changi-flugvellinum í Singapúr við komuna til landsins fyrr í dag, en hann sagði að fólk ætti ekki að gera of miklar væntingar til fundar leiðtoganna. Hann sagðist þó búast við að fundurinn færi vel fram og að sanngirni yrði gætt. „Ég er bara glaður að fá að taka þátt í þessu,“ sagði Rodman. „Ég held að ég hafi vakið fólk til vitundar um ýmis mál víða um heim og ég held að Norður-Kórea gefi mörgum tækifæri með þessum fundi núna og vona að hann skili árangri. Hverjum hefði dottið í hug fyrir fimm eða sex árum að þetta gæti gerst. Ég er spenntur að fá að taka þátt í þessu,“ sagði körfuboltastjarnan.
Aðspurður sagðist hann ekki vita hvort hann myndi hitta Kim eftir fundinn á morgun. „Það kemur mér alltaf á óvart þegar ég hitti hann. Kannski verður það sama uppi á teningnum á morgun. Kannski hitti ég hann óvænt á morgun áður en hann fer.“