Bresk stjórnvöld óskuðu í dag eftir fundi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vegna árása hersveita stjórnvalda í Jemen á hafnarborgina Hudaydah. Hersveitir stjórnvalda njóta stuðnings Sádí-Arabíu, en Hudaydah, er undir stjórn uppreisnarmanna.
Sameinuðu þjóðirnar hafa þegar vakið athygli á að árásirnar kunni að lama flutning hjálpargagna og matvæla til milljóna íbúa Jemen sem eru á barmi hungursneyðar og hvöttu, ásamt alþjóða Rauða krossinum, í morgun stríðandi fylkingar til að verja almenna borgar.
Búist er við að Öryggisráðið fundi á morgun og yrði það annar fundur ráðsins í þessari viku þar sem málefni Jemen yrðu rædd. Bretar óskuðu eftir fundinum eftir að Martin Griffiths, sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Jemen, greindi frá því að hann stæði í samningum um að halda höfninni í Hudaydah áfram opinni.
Neyðaraðstoð vegna borgarastríðsins í Jemen hefur að mestu leyti borist í gegnum borgina og segir AFP-fréttastofan um 70% af öllum innflutningi til landsins koma um höfnina. Stjórnvöld í Jemen fullyrða hins vegar að uppreisnarmenn noti höfnina til að smygla vopnum til landsins,
Varað hefur verið við miklum harmleik ef ráðist yrði á Hudaydah, en milljónir manna í þessu stríðshrjáða landi reiða sig á neyðaraðstoð.
Öryggisráðið sagði á mánudag að það styddi tilraunir Griffiths við að halda höfninni opinni, en óskaði ekki eftir að Sádi-Arabar eða Sameinuðu arabísku furstadæmin, sem styðja hersveitir jemenskra stjórnvalda, slepptu því að gera árás á Hudaydah.
Griffiths hefur staðið í viðræðum við uppreisnarmenn húta, um að Sameinuðu þjóðirnar fái yfirumsjón með höfninni, þannig að hægt sé að tryggja áframhaldandi birgðasendingar til íbúa.
Rúmlega 22 milljónir manna í Jemen þurfa á aðstoð að halda og blasir hungursneyð við 8,4 milljónum þeirra að mati Sameinuðu þjóðanna, sem telja ástandið í Jemen eitt versta í heiminum.