Tesla leikstjóra í ljósum logum

AFP

Tesla-bifreið í eigu breska leikstjórans Michael Morris stóð í ljósum logum í Los Angeles í vikunni. Mary McCormack, eiginkona Morris, greindi frá þessu á Twitter, þar sem hún birti dramatískt myndskeið sem sýnir hvernig bifreiðin logar úti á götu.

Hún segir að enginn hafi slasast en þetta hafi gerst fyrirvaralaust í miðri umferð á Santa Monica Blvd. Hún segir að aðrir ökumenn hafi látið Morris vita sem leiddi til þess að hann stöðvaði bifreiðina. Þetta kemur fram á vef BBC.

Atvikið er til skoðunar að sögn forsvarsmanna Tesla, en þeir segja að það sé afar óvenjulegt að svona skuli gerast. Fyrirtækið heldur því fram að það séu mun minni líkur á því að það kvikni í þeirra rafmagnsbílum heldur en í bifreiðum sem ganga fyrir eldsneyti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert