Frumvarp að lögum þar sem lagt er bann við myndatökum eða myndbandsupptökum af ísraelska hernum nýtur stuðnings allra ráðherra Ísraels. Stjórnarandstæðingar segja lögin andlýðræðisleg og hættuleg.
AFP-fréttaveitan greinir frá því að í tilkynningu frá ísraelska dómsmálaráðuneytinu komi fram að stjórnarráð landsins hafi lýst yfir stuðningi við frumvarpið en fari það óbreytt í gegn geta þeir sem taka upp eða dreifa efni af ísraelskum hermönnum átt yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi.
Lögin veita dómstólum landsins heimild til að fangelsa þá í fimm ár sem gerast brotlegir við lögin, en tíu ár grafi þeir jafnframt undan öryggi Ísrael.
Í frétt AFP segir að nýlega hafi ísraelskur hermaður verið látinn laus úr níu mánaða fangelsi en myndbandsupptaka náðist af honum að skjóta særðan Palestínubúa til bana.
Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Avigdor Lieberman, varnarmálaráðherra Ísraels. Sagði hann að með því ætlaði hann til að binda enda á tilraunir öfgamanna til þess að grafa undan, niðurlægja og skaða ísraelska hermenn.
Stjórnarandstæðiþingmaðurinn Ksenia Svetlova gagnrýnir aftur á móti frumvarpið og segir það hættulegt og andlýðræðislegt. Það skaði tjáningarfrelsi fjölmiðla, einstaklinga og samtaka.
„Þar sem tilgangurinn er góður þarf ekki að fela neitt,“ sagði hún á Twitter.