Brad Parscale, kosningastjóri Donalds Trump Bandaríkjaforseta, kallar eftir því að forsetinn reki Jeff Sessions, dómsmálaráðherra og endi rannsókn Roberts Mueller á tengslum forsetaframboðs Trump við rússnesk stjórnvöld. Þetta gerir hann á Twitter.
Parscale segir ómögulegt fyrir forsetann að hindra framgang réttvísinnar enda sé málið falskt frá upphafi. Þetta hafi skýrsla innra eftirlits dómsmálaráðuneytisins sem gefin var út á dögunum. Skýrslan átti að varpa ljósi á rannsókn James Comey, þáverandi yfirmanns FBI, á rannsókn alríkislögreglunnar á tölvupóstnotkun Hillary Clinton forsetaframbjóðanda.
Time to fire Sessions
— Brad Parscale (@parscale) June 19, 2018
End the Mueller investigation
You can’t obstruct something that was phony against you
The IG report gives @realDonaldTrump the truth to end it all.
Sessions tilkynnti fyrir síðasta sumar að hann hefði sagt sig frá öllum málum sem tengjast kosningunum í nóvember árið 2016, m.a. öllu er snertir rannsóknina á afskiptum Rússa. Það gerði hann í kjölfar þess að upp komst að hann hafði ekki sagt þinginu frá því að hann hefði tvisvar sinnum fundað með sendiherra Rússlands meðan á kosningabaráttunni stóð. Sú ákvörðun mun ekki hafa lagst vel í forsetann og hafa sögusagnir gengið síðan um að hann vilji reka dómsmálaráðherrann.
Þannig hefur Reince Priebus, sem gegndi starfi starfsmannastjóra Hvíta hússins þar til síðasta sumar, sagt að hann hafi ítrekað þurft að sannfæra Donald Trump um að reka ráðherrann ekki.