„Ég mun skrifa undir eitthvað“

Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst undirrita tilskipun á næstunni þess efnis …
Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst undirrita tilskipun á næstunni þess efnis að fjölskyldur ólöglegra innflytjenda verði ekki aðskildar við komuna til Bandaríkjanna. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lofað að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að fjölskyldur innflytjenda verði aðskildar við komuna til Bandaríkjanna.

„Ég mun skrifa undir eitthvað innan tíðar sem mun tryggja það,“ sagði Trump við fréttamenn í Hvíta húsinu í dag. Trump hefur hingað til sagt að þingið eitt hafi vald til að breyta reglunum en hefur nú tekið málin í sínar hendur. 

Nýjar reglur undir yfirskriftinni „Ekkert umburðarlyndi“ voru settar í maí og fela þær í sér að fólki sem reynir að kom­ast til Banda­ríkj­anna með ólög­mæt­um hætti yrði ekki sýnt neitt umb­urðarlyndi en marg­ir þeirra ætla sér að sækja um hæli í Banda­ríkj­un­um. Fólk er fang­elsað og á yfir höfði sér sak­sókn. Þá eru börn aðskilin frá fjölskyldum sínum á landa­mær­un­um og komið fyr­ir í sér­stök­um búðum/​mót­tökumiðstöðvum á veg­um stjórn­valda (Depart­ment of Health and Hum­an Services) og þaðan eru þau send til ætt­ingja eða í fóst­ur.

Vinna stendur nú yfir í heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna undir forystu ráðherrans Kirstjen Nielsen þar sem verið er að undirbúa drög að tilskipun sem felur í sér að fjölskyldur verði ekki aðskildar við komuna til Bandaríkjanna.

Á sama tíma vill Trump hins vegar að innflytjendalöggjöfin verði hert og að fólk sem kemur til Bandaríkjanna með ólöglegum hætti má áfram eiga von á því að verða fangelsað og sótt til saka. Frumvarp um breytingar á innflytjendalögum verður tekið til umfjöllunar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert