Erdogan lýsir yfir sigri

Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti hefur lýst yfir sigri í forsetakosningum landsins sem fram fóru í dag. Segir hann flokksbandalag sitt enn fremur hafa tryggt sér meirihluta á þinginu.

„Óopinberar niðurstöður kosninganna eru nú ljósar. Samkvæmt þeim hefur þjóðin treyst mér fyrir verkefnum og ábyrgð forsetaembættisins,“ sagði Erdogan fyrir skömmu við híbýli sín í Istanbúl.

Erdogan ásamt eiginkonu sinni, Emine, fyrir utan kjörstað í dag.
Erdogan ásamt eiginkonu sinni, Emine, fyrir utan kjörstað í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert