Tugir fórust í sjóslysi

AFP

Á þriðja tug líka hefur fundist eftir að bátur með ferðamönnum sökk við taílensku eyjuna Phuket í dag. Aftakaveður var á þessu slóðum þegar slysið varð. Farþegarnir eru frá Kína og er yfir þrjátíu enn saknað. Aðeins hefur tekist að bjarga einni konu á lífi en hún fannst nokkrar mílur frá þeim stað sem báturinn sökk.

Fimm farþegar fundust látnir á reki skammt frá þeim stað þar sem skemmtibáturinn, Phoenix, sökk og nokkur lík hafa fundist um borð í flaki bátsins. 

Aftakaveður var á þessum slóðum og samkvæmt fréttum af skipsskaðanum náði ölduhæðin fimm metrum þegar slysið varð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert