Myndskeið birt af taílensku drengjunum

Myndskeið af fótboltastrákunum tólf sem bjargað var úr Tham Luang hellakerfinu var birt á blaðamannafundi taílenskra yfirvalda í dag. 

Myndskeiðið sýnir drengina á sjúkrahúsi þar sem þeim verður haldið í einangrun í að minnsta kosti eina viku til viðbótar á meðan ónæmiskerfi þeirra eru enn viðkvæm. Í myndskeiðinu virðast drengirnir þó vera hressir þar sem þeir veifa myndavélinni. 

Drengirnir fengu að sjá ástvini sína í dag í gegnum glervegg þar sem ástand þeirra er enn viðkvæmt og voru endurfundir gleðilegir. Gert er ráð fyrir því að þeir fái svo að hitta ættingja sína aftur síðar í vikunni undir ströngu eftirliti lækna. 

Dr. Chaiyawej Thanapaisarn, einn af læknum drengjanna, sagði á blaðamannafundinum að þeir yrðu líkast til þrjátíu daga að ná sér að fullu. Það verður því að koma í ljós hvort að drengirnir muni hafa heilsu til að mæta á úrslitaleik Heimsmeistaramótsins í Rússlandi líkt og þeim var boðið. 

Hér má sjá myndskeiðið af drengjunum tólf sem birt var á blaðamannafundinum í dag.

Strákunum er haldið í einangrun sökum sýkingarhættu.
Strákunum er haldið í einangrun sökum sýkingarhættu. Ljósmynd/Twitter
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert