Drukknuðu eftir vináttuleik

Líklegt þykir að drengirnir hafi viljað baða sig í ánni …
Líklegt þykir að drengirnir hafi viljað baða sig í ánni eftir knattleikinn. Mynd úr safni. AFP

Lík fimm drengja á táningsaldri hafa fundist í á í suðausturhluta Bangladess. Talið er að drengirnir hafi drukknað í ánni aðeins skömmu eftir að hafa leikið vináttuleik í knattspyrnu á milli stuðningsmanna Argentínu og Brasilíu í gærkvöldi.

Líklegt þykir að drengirnir hafi viljað baða sig í ánni eftir knattleikinn.

„Áin er mjög djúp á þessum stað. Við björguðum einum dreng. Síðan fundum við lík fimm drengja. Þar á meðal voru tveir bræður,“ segir lögreglustjórinn Bakhtiaruddin Chowdury í samtali við fréttastofu AFP.

Tugþúsundir manna hafa flykkst að til að vera viðstaddir jarðarför drengjanna í dag, að sögn lögreglustjórans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert