Órói skapaðist við upphaf blaðamannafundar Donald Trump Bandaríkjaforseta og Vladimir Pútín Rússlandsforseta sem stendur nú yfir í forsetahöllinni í Helsinki þegar mótmælandi var dreginn út úr salnum þar sem fundurinn fer fram.
Samkvæmt blaðamanni CNN höfðu öryggisverðir beðið manninn um að yfirgefa salinn sem hann gerði á friðsamlegan hátt. Hann kom þó aftur inn í salinn með handskrifað skilti sem á stóð „samningur um bann á kjarnorkuvopnum“. Þá var maðurinn þvingaður til að yfirgefa salinn.
Samkvæmt vef Guardian er maðurinn bandarískur blaðamaður frá tímaritinu The Nation.
Skömmu eftir að maðurinn var fjarlægður úr salnum hófst blaðamannafundurinn, talsvert seinna en áætlað var. Hann stendur nú yfir.
US Journalist from The Nation sitting next to me is being asked to go with secret service before start of news conf. Escorted out by Finnish security and US secret service #. #TrumpPutinSummit pic.twitter.com/EunnupuCoV
— Jon Sopel (@BBCJonSopel) July 16, 2018
Protestor just dragged out of the hall at Finnish presidential palace where trump and putin meeting. pic.twitter.com/Ykr65kzPRx
— Andrew Roth (@Andrew__Roth) July 16, 2018