Liðsmönnum Pussy Riot refsað

Hópurinn hlaut fimmtán daga fangelsisvist fyrir að trufla úrslitaleik HM …
Hópurinn hlaut fimmtán daga fangelsisvist fyrir að trufla úrslitaleik HM með mótmælaaðgerðum sínum. AFP

Fjórir liðsmenn rússneska andófshópsins Pussy Riot voru í dag dæmdir til fimmtán daga fangelsisvistar fyrir mótmæli sín á úrslitaleik HM í Rússlandi. Þeim hefur sömuleiðis verið bannað mæta á íþróttaviðburði næstu þrjú árin.

Frá þessu greinir hópurinn á Twitter-síðu sinni.

Þau sem voru dæmd fyrir þáttöku sína í mótmælunum heita Veronica Nikulshina, Olga Kurachova, Pyotr Verzilov og Olga Pakhtusova.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert