Gaf barni brjóst á sýningarpallinum

Mara Martin og Aria á sýningarpallinum.
Mara Martin og Aria á sýningarpallinum. Skjáskot/Fox

Fyrirsætan Mara Martin vakti heldur betur athygli er hún gekk á bikiníi um sýningarpall á tískusýningu í Miami á meðan hún gaf barni sínu brjóst.

Í frétt BBC segir að Martin hafi haldið á fimm mánaða gamalli dóttur sinni, Aria, í fanginu á tískusýningunni sem Sports Illustrated hélt á sunnudag.

„Ég trúi því ekki að ég sé að vakna við fyrirsagnir um mig og dóttur mína að gera eitthvað sem við gerum alla daga,“ skrifar Martin á Instagram um viðbrögðin sem hún fékk.

Margir hrósuðu fyrirsætunni og sögðu hana góða fyrirmynd. Aðrir sökuðu hana um að vera athyglissjúka.

Martin gekk um sýningarpallinn í gullnu bikiníi og gaf Ariu litlu brjóst á sama tíma. Barnið var með heyrnartól á höfði til að verja það fyrir hávaðanum á sýningunni. „Af hverju gerir þú þetta? Ég giska á að þú viljir fá athygli sem þig skortir?“ skrifar einn við færslu Martin á Instagram. Annar skrifar: „Nei og aftur nei.“

Aðrir eru mun jákvæðari og hrósa henni í hástert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert