Öld frá morðinu á síðasta keisaranum

Fjölmenni tók þátt í göngu í nótt sem prestar rússnesku …
Fjölmenni tók þátt í göngu í nótt sem prestar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar leiddu. AFP

Snemma dags fyrir hundrað árum var Nikulás II., síðasti keisari Rússlands, drepinn af Bolsévikum ásamt eiginkonu sinni og börnum í kjallara húss í Tobolsk. Þessara tímamóta minntust um 100 þúsund manns á vettvangi atburðanna, skammt austan Úral-fjalla, í nótt. Gekk hópurinn, undir leiðsögn prests rétttrúnaðarkirkunnar, frá morðstaðnum og að klaustri, um 21 kílómetra leið.

Klaustrið var byggt á þeim stað þar sem brenndum líkum fjölskyldunnar var fleygt eftir aftökuna sem fram fór í kjölfar rússnesku byltingarinnar. 

Bolsévikar skutu keisarann, sem þá hafði nýverið sagt af sér, eiginkonu hans og fimm börn til bana. Einnig voru þjónar þeirra og læknir, sem stödd voru í húsinu, drepin. Fjölskyldan var í stofufangelsi. 

Yfirvöld á svæðinu segja að áhugi á sögu keisarafjölskyldunnar fari vaxandi. Um 2.000 manns tóku þátt í athöfn á vettvangi morðanna árið 2002 og hefur fjöldinn aukist mikið síðan. 

Ný DNA-rann­sókn hef­ur staðfest að bein sem tal­in voru af fjöl­skyldunni eru raun­veru­lega úr henni.  Frá þessu greindu rann­sak­end­ur í gær, en staðfest­ing er tal­in kunna að auka lík­ur á að rúss­neska rétt­trúnaðar­kirkj­an viður­kenni nú rétt­mæti bein­anna og veiti þeim greftrun.

Það var kirkj­an sjálf sem fór fram á DNA-rann­sókn­ina, en kirkj­an hafði dregið fyrri rann­sókn á bein­un­um í efa. 

Nikulás II. var síðasti keisari Rússlands.
Nikulás II. var síðasti keisari Rússlands. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert