Skutu ungling til bana

Frá Vesturbakkanum.
Frá Vesturbakkanum. AFP

Palestínskur unglingur var skotinn til bana af ísraelskum hermönnum í árás á Vesturbakkanum í nótt, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti Palestínu.

Arkan Mizher, 15 ára, var skotinn í bringuna í átökum við íbúa í Dheisheh-flóttamannabúðunum í Betlehem, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. 

Í tilkynningu frá Ísraelsher kemur fram að hermenn hafi farið inn í búðirnar og handtekið tvo og beitt úrræðum gegn óeirðarseggjum sem veittust að þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert