Skutu niður sýrlenska herþotu

AFP

Ísraelar skutu niður sýrlenska herþotu í dag en samkvæmt upplýsingum frá Ísraelsher var flugvélin komin inn í ísraelska lofthelgi. Þessu neitar sýrlenski herinn. Flugvélin hafi verið hluti af aðgerðum gegn vígasamtökunum Ríki íslams yfir sýrlensku landsvæði.

Um er að ræða orrustuþotu með utan á liggjandi eldflaugum og samkvæmt upplýsingum frá flugmálayfirvöldum í Ísrael var hún komin um 2 km inn í lofthelgi Ísrael. Afar sjaldgæft er að herþotur séu skotnar niður með þessum hætti og er talið að þetta geti aukið á spennu milli ríkjanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert