Skyndiflóð í Aþenu sem olía á eldinn

Fjöldi bíla skemmdist í skyndiflóðum sem hafa lokað stórum umferðaræðum …
Fjöldi bíla skemmdist í skyndiflóðum sem hafa lokað stórum umferðaræðum í Aþenu. AFP

Úrhelli í Grikklandi undanfarna daga hefur leitt af sér skyndiflóð í Aþenu, höfuðborg landsins. Undanfarna daga hafa skógareldar einnig geisað í nágrenni Aþenu og leitt 82 til dauða. Eldarnir eru þeir stærstu í manna minnum í Grikklandi. 

Slökkvilið segir að stórar umferðaræðar séu ófærar vegna flóðanna og um 160 íbúar í tveimur af fínni hverfum borgarinnar, Maroussi og Ekali, eru strandaglópar á heimilum sínum. 

Varnarmálaráðuneyti Grikklands hefur kallað út hermenn til hjálpar fólkinu og til að fyrirbyggja að flóð verði á fleiri svæðum í höfuðborginni.

Í nóvember létust 16 manns í skyndiflóðum í nágrenni Aþenu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert