Níu í hundraðfalt lífstíðarfangelsi

Skjáskot af myndbandsupptöku frá sprengjuárásinni sem gerð var við friðarviðburð …
Skjáskot af myndbandsupptöku frá sprengjuárásinni sem gerð var við friðarviðburð í tyrknesku borginni Ankara árið 2015. AFP

Dómstóll í Ankara í Tyrklandi hefur dæmt níu menn í lífstíðarfangelsi fyrir sprengjuárás sem gerð var við friðarsamkomu í Ankara í október árið 2015. Árásin er sú mannskæðasta í landinu á 21. öldinni.

Sakborningarnir voru allir dæmdir til 101 lífstíðar fangelsis, segir í frétt AFP sem hefur þetta eftir heimildum ríkisfjölmiðilsins Anadolu. Hundrað manns létu lífið í árásinni sem Ríki íslams er sagt bera ábyrgð á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert