Telur að Skopelos verði áfram „Mamma Mia-eyjan“

Nýja Mamma Mia-myndin sem frumsýnd var hér á landi í …
Nýja Mamma Mia-myndin sem frumsýnd var hér á landi í júlí er tekin upp á króatísku eyjunni Vis. Skjáskot

Nýja Mamma Mia-myndin var ekki tekin upp á Grikklandi heldur í Króatíu. Borgarstjóri grísku eyjarinnar Skopelos telur að ferðamenn sem þrá að setja sig í spor söguhetja haldi áfram að koma, eyjan sé hin sanna Mamma Mia-paradís þótt kvikmyndaverinu hafi boðist betri kjör á króatísku eyjunni Vis. 

Fádæma vinsældir kvikmyndarinnar Mamma Mia frá árinu 2008 urðu til þess að fjöldi ferðamanna á grísku eyjunni Skopelos margfaldaðist. Talað var um „Mamma Mia-áhrifin“ og þeirri vel heppnuðu kvikmynd þakkaðar auknar tekjur og aukin atvinna á eyjunni á erfiðum tímum, en myndin kom út á því herrans ári 2008.

Nú, áratug síðar, gæti sams konar áhrifa farið að gæta en í þetta sinn er aldrei að vita nema þau komi fram á annarri eyju: hinni króatísku Vis. Eyjan er tökustaður nýju Mamma Mia-myndarinnar sem frumsýnd var hér á landi í júlí. Nýja myndin er því ekki tekin á sama stað og sú fyrri.

Báðar Mamma Mia-myndirnar eiga þó að gerast á eyjunni Kalokairi, en sú nafngift er hugarfóstur handritshöfunda og er ekki til í raun.

Mamma Mia kom út árið 2008 og var tekin á …
Mamma Mia kom út árið 2008 og var tekin á grísku eyjunni Skopelos. Eyjaskeggjar hafa notið góðs af því að enn sækja ferðamenn til eyjarinnar í þeim tilgangi að endurupplifa atriði úr myndinni. Skjáskot

Vinsælt að gifta sig í litlu kirkjunni á klettinum

Margir tökustaðir á Skopelos hafa orðið að vinsælum áfangastöðum ferðamanna sem vilja lifa sig inn í myndina. Einn þeirra er litla kirkjan uppi á klettinum þar sem eftirminnilegt brúðkaup fór fram í fyrri myndinni.

Kvikmyndaferðamennska hefur rutt sér til rúms á undanförnum árum. Tökustaðir kvikmynda eða þátta hafa þannig orðið að vinsælum áfangastöðum fyrir ferðamenn. Fólk vill upplifa það sem það sér á hvíta tjaldinu með því að heimsækja staðina sjálft. Þetta urðu íbúar Skopelos áþreifanlega varir við í kjölfar þess að Mamma Mia sló í gegn 2008.

„Þetta er alveg ótrúlegt. Ég hef fengið fyrirspurnir frá fólki út um allan heim. Par frá Englandi spurði hvort það gæti bókað ströndina úr myndinni fyrir brúðkaup. Og ástralskt par vildi endunýja brúðkaupsheitin sín í Ayios Ioannis-kapellunni, þar sem brúðkaupið fer fram í myndinni,“ sagði Mahi Drossou, ferðaskipuleggjandi á eyjunni Skopelos, í samtali við Guardian árið 2008 eftir að fyrri myndin kom út.

„Símarnir hætta aldrei að hringja. Fólk hringir stöðugt og spyr hvernig það kemst til Mamma Mia-paradísarinnar,“ sagði borgarstjórinn á eyjunni Christos Vasiloudi við blaðið.
Áhyggjur voru þó uppi á sínum tíma um að sprenging í fjölda ferðamanna á eyjunni yrði viðkvæmri náttúru um megn. Enda hefur verið bent á að kvikmyndaferðamennska geti verið tvíeggjað sverð. Hún getur, eðli málsins samkvæmt, verið tímabundin gæfa fyrir þá staði sem um ræðir. Kvikmyndir gleymast og þá geta tökustaðirnir gleymst líka.

Vinsældir Mamma Mia hafa enst eyjarskeggjum á Skopelos vel og virðast ekki hafa komið niður á náttúruperlum. Mamma Mia-ferðir njóta enn vinsælda og margir sækja eyjuna heim eingöngu vegna aðdáunar sinnar á myndinni frá 2008.

Skopelos á Grikklandi er græn og gróin eins og sést …
Skopelos á Grikklandi er græn og gróin eins og sést í myndinni. Hún hefur verið kölluð Mamma Mia-eyjan og borgarstjórinn hefur ekki áhyggjur af því að það breytist þótt nýja Mamma Mia-myndin sé tekin á allt annarri eyju í Króatíu. Greek Tourist Organisation

Ódýrara að mynda í Króatíu

„Króatía leikur Grikkland í myndinni en sem tökustaður er Vis allt sem við gátum óskað okkur. Framtíð Króatíu sem tökustaður kvikmynda er endalaus. Fyrir utan fjárhagslegan ávinning af því að mynda þar þá hafði eyjan allt sem við óskuðum okkur,“ sagði Ol Parker, leikstjóri Mamma Mia-myndanna, á blaðamannafundi á Vis þegar tökum á myndinni lauk.

Borgarstjórinn á Skopelos er enn sá sami og fyrir áratug, Christos Vasiloudi, og hann hefur tjáð sig um nýja tökustaðinn. „Við vorum mjög leið yfir þessu því okkur fannst að önnur myndin ætti líka að vera tekin hér. En líklega var þetta bara miklu ódýrara í Króatíu. En þetta er ekkert tap fyrir okkur því Skopelos heldur áfram að vera hina eina sanna Mamma Mia-eyja,“ segir Vasiloudi ákveðinn við Mirror.

Ástæða þess að skipt var um tökustað er einmitt sú að ódýrara var að mynda í Króatíu því þar gat kvikmyndaverið t.d. fengið 20% endurgreiðslu framleiðslukostnaðar en slíkt er ekki lengur í boði í Grikklandi eftir lagabreytingu 2011. Óvíst er hvort Vis getur farið að búa sig undir holskeflu af Mamma Mia-ferðamönnum eða hvort Skopelos tekur áfram við æstum aðdáendum. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert