Mótmælin halda áfram

Malcolm Jenkins mótmælir fyrir leik fyrr í mánuðinum.
Malcolm Jenkins mótmælir fyrir leik fyrr í mánuðinum. AFP

Nokkrir leikmenn í NFL-deildinni hafa mótmælt þegar þjóðsöngur Bandaríkjanna er leikinn fyrir æfingaleiki en deildarkeppnin hefst í byrjun september.

Malcolm Jenkins og De'Vante Bausby, leikmenn Philadelphia Eagles, krepptu hnefann þegar þjóðsöngurinn var leikinn. Það sama gerðu Marwquise Goodwin, leikmaður San Francisco 49ers, og Robert Quinn, leikmaður Miami Dolphins. Kenny Stills og Albert Wilson, liðsfélagar Quinn, krupu þegar þjóðsöngurinn var leikinn.

Greint var frá því í vor að leikmenn sem krjúpa, þegar þjóðsöng­ur­inn er spilaður, muni fá fjár­sekt. Þær áætlanir hafa verið settar í biðstöðu.

Colin Kaepernick var fyrstur til að mótmæla en fjöldi leikmanna neitaði að standa á meðan þjóðsöngurinn var leikinn á síðasta tímabili. 

„Ég ætla ekki að standa upp til að sýna stolt gagn­vart fána lands sem kúg­ar svarta og litað fólk. Fyr­ir mér er þetta stærra en fót­bolt­inn og það væri sjálfs­elskt af mér að líta und­an. Það liggja lík í göt­unni og fólk er að fara í launað leyfi og kem­st upp með morð,“ sagði Kaepernick.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert