Maður er í haldi lögreglunnar í Connecticut eftir að yfir 40 manns ofskömmtuðu af fíkniefni sem talið er að hafa verið blandað með ópíóíðum á þriðjudagskvöldið.
Í frétt BBC kemur fram að fólkið hafði notað fíkniefni sem gengur undir nafninu K2 en það er markaðssett sem svipað efni og maríjúana. Efnið var selt í almenningsgarði og bárust fyrstu tilkynningarnar um ofskömmtun í nágrenni Yale-háskóla á þriðjudagskvöldið og bárust þær fram eftir degi í gær. Einhverjir þeirra eru þungt haldnir og í lífshættu. Alls létust 72 þúsund manns í Bandaríkjunum í fyrra vegna ofskömmtunar.
Maðurinn sem var handtekinn í gær er grunaður um að tengjast viðskiptum með eiturlyfið sem fólkið hafði keypt. Að sögn læknis við Yale New Have-sjúkrahúsið hafði fíkniefnið verið blandað með fentanyl.
Svo virðist sem neyðarlyfið Naloxon hafi ekki dugað á þá sem ofskömmtuðu en neyðarlyfið getur komið í veg fyrir andlát ef það er gefið nægjanlega fljótt eftir ofskömmtun ópíóíða.
Samkvæmt nýrri skýrslu embættis landlæknis í Bandaríkjunum er fentanyl nú orðið banvænna, það er fleiri sem látast af völdum þess, en HIV, í bílslysum og í skotárásum í Bandaríkjunum.