Sögð beita Ísland þrýstingi

Því er haldið fram að Ine Marie Eriksen Søreide, utanríkisráðherra …
Því er haldið fram að Ine Marie Eriksen Søreide, utanríkisráðherra Noregs, hafi beitt Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra þrýstingi vegna þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Ljósmynd/Stjórnarráðið

„Satt að segja finnst mér þetta forkastanlegt. Íslendingar eiga að taka sjálfstæða ákvörðun út frá þeirra hagsmunamati og Noregur á ekki að beita þá þrýstingi,“ segir Sigbjørn Gjelsvik, þingmaður norska Miðflokksins (n. Senterpartiet), í  samtali við norska dagblaðið Klassekampen.

Vísar Gjelsvik til orða Ine Marie Erik­sen Sørei­de, ut­an­rík­is­ráðherra Nor­egs, í viðtali í Morgunblaðinu á föstudag um að hún hafi rætt afstöðu norskra stjórnvalda til þriðja orkupakka Evrópusambandsins við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra og íslenska þingmenn.

„Það er mik­il­vægt fyr­ir mig að koma því á fram­færi að norska Stórþingið hef­ur samþykkt þessa til­skip­un. Fyr­ir okk­ur er mik­il­vægt að til­skip­un­in sé tek­in upp í EES-samn­ing­inn, þar sem við nú þegar erum hluti af evr­ópsk­um orku­markaði. Það er ákveðin hætta fyr­ir okk­ur ef hún myndi ekki öðlast gildi,“ sagði Sørei­de í viðtalinu.

Þriðji orkupakki Evrópusambandsins verður ekki hluti af EES-samningnum nema öll aðildarríki samþykki innleiðingu tilskipunar þess efnis. Norðmenn samþykktu á Stórþinginu í vor slíka gildistöku, en Alþingi hefur ekki afgreitt málið.

Í norskum miðlum hafa sumir talið Søreide skipta sér af …
Í norskum miðlum hafa sumir talið Søreide skipta sér af íslenskum stjórnmálum. Samsett

Verða að sýna Íslandi virðingu

„Það er einnig í okkar eigin hag að neitunarvaldið [ríkja í EES] í samningnum viðhaldist. Ríkisstjórn vinstriflokkanna nýtti sér þetta neitunarvald til þess að stöðva pósttilskipunina og við verðum að virða það að öll EES-ríkin hafa þennan sama rétt,“ er haft eftir Gjelsvik.

Þá hafa einnig samtökin Nei til EU vakið athygli á orðum ráðherrans og samþykkti miðstjórn samtakanna ályktun vegna málsins um helgina. „Þetta eru ámælisverð afskipti af íslenskum stjórnmálum,“ segir í ályktuninni. Krafist er í ályktuninni að „norsk afskipti í máli er snertir fullveldi Íslendinga verði stöðvuð tafarlaust“.

Kathrine Kleveland, formaður samtakanna, fullyrðir við Nationen að Sørei­de sé að beita utanríkisráðherra Íslands og kjörna fulltrúa á Íslandi þrýstingi.

Spurð hvort ráðherra Noregs sé ekki heimilt að skýra afstöðu Noregs í málinu svarar Kleveland: „Hún [ráðherrann] má halda því fram sem hún telur rétt og segja frá því sem við höfum samþykkt í Noregi. En þegar sagt er að það sé einhver áhætta fyrir Noreg skyldu Íslendingar hafna tilskipuninni, er um að ræða óforskömmuð afskipti af íslenskum stjórnmálum.“

„Norsk yfirvöld verða að virða það að Íslendingar gætu ákveðið að segja nei,“ sagði hún.

Kathrine Kleveland.
Kathrine Kleveland. Ljósmynd/Nei til EU
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert